Hringt í marga
- May 2, 2023
- 1 min read
Þegar ég var 20 ára vann ég á Dagblaðinu, smá á Fréttablaðinu og í einn dag á Séð og heyrt. Það var eiginlega þessi vinna sem ýtti mér út í það að fara í framhaldsnám í lis

taháskóla. Mér hugnaðist ekki þessi stíll. Eitt af vikulegum verkefnum á öllum miðlum var svokallað „hringt í marga" - þá átti maður a hringja í hóp af frægum, spyrja þá að einhverju eins og hvað finnst þér best að setja á pylsu, og svo var afraksturinn settur saman á stórri opnu með útklipptum ljósmyndum af þeim sem voru spurðir.
Þetta þótti líka vera mjög ódýrt kveðið, meira að segja þá.
Raunveruleikinn er því miður svona í dag. Stöðugt. Doldið glatað. En að minnsta kosti eru allir að telja kalóríur og macros.
Um helgina lenti ég í því leiðindamáli að þurfa millifæra ógeðslega stóra summu af mínum eigin reikningi, yfir á fyrirtæki sem ég var í forsvari fyrir. Þetta var eitt það sárasta sem ég hef gert og líklega einhverskonar útskriftarverkefni í fyrirtækjarekstri. Niðurstaða: það er ekki fyrir mig. Ég er ekki nógu snjall, ekki nógu gráðugur, ekki nógu strangur.
Sár lærdómur.
コメント