top of page
Search

Taugabanar

  • dorinr1
  • Apr 24, 2023
  • 2 min read

Gráir dagar, þandar taugar, áhyggjur. Hinn eilífi mánudagur, gluggapóstur tilverunnar. Það er allt í góðu, það er allt í himnalagi. Netflixið er stútfullt af efni og allar kræsingar lífsins eru í kallfæri. Börnin hjala á mottu, konan mátar ný undirföt og breimar af kynþokka inn í herberginu. Rafbíll malar í innkeyrslunni. Eða hann malar ekki. Hann kann það ekki. Hann skýst áfram um vegina eins og hugmynd, eða ljós eða jafnvel tölvupóstur. Hann er þar sem hann þarf að vera. Og ég - ég er bara í sófanum. Alltaf í sófanum. Mitt á milli heimsins sem ég held að sé þarna og tilverunnar sem lögð var á borð eftir naglasúpuævintýri síðustu 20 ára. Að geta ekki farið og geta ekki verið. Hin sanna kvöl. Langa kvölin.


Ég yfirgef yfirleitt allt um leið og það samþykkir mig. Fór af Facebook við dynjandi lófatak, yfirgaf Twitter því allir voru heimskir og óöruggir nema ég. Ég er svo skemmtilegur og sniðugur að það þarf að geyma mig einan einhversstaðar. Því allir aðrir blikna í samanburði og ég er hvergi skemmtilegir, sniðugri og orðheppnari, en þegar ég er einn, fjarri mannfólkinu, með útsýni yfir allt og alla - nema mína eigin spegilmynd. Þá er enginn eins og ég.


Svo lendir maður í því að þurfa að vera á Facebook útaf sameiginlegum admin skyldum. Maður neyðist til að fletta upp leitarvélinni á Twitter, bara til að gá hvort fólk hafi nokkuð gleymt manni. Og allt í einu er maður enn sítengdari. Tengdari við allt, en í sama mund engan. Raddlaus. Og það er mín mesta martröð.


Þess vegna ætla ég að skrifa texta hérna. Í von um að einhver finni hann einhverntíma. Og sjái að hér var rödd. En núna ætla ég að horfa á myndband á Youtube. Þar sem fjallað er um hvort persóna Sean Connery í kvikmyndinni The Rock, sé í raun James Bond. Þannig get ég frestað verkefnum og áhyggjum dagsins um 20 mínútur. Og frestað því að horfa í spegil, enn einn daginn.


 
 
 

Recent Posts

See All
Að gefnu tilefni

Vil ég bara taka það fram að ég er ekki hetja eða fyrirmynd og ég þarf þess ekki. Það þurfa ekki allir að vera hetjur. Það eiga ekki...

 
 
 

Comments


Dramatúrgistan EHF

  • alt.text.label.Instagram

©2023 by Dramatúrgistan EHF. Proudly created with Wix.com

bottom of page